Eyjan sem kennd er við nammi!
11.05.2007 22:54:33 / prydiskonur

Oki reynum þetta aftur, og hér kemur það

Við erum ekki dauðar enn, nýbúið að renna af okkur og sem betur fer erum við ekki orðnar að pólverjum. 7 9 13.

Þetta byrjaði á fjórum fjörugum, tyson, Lalli Jhons, Aumingi og Feitur. Hafa þeir verið hjá okkur dágóða stund, en þá byrjaði þetta allt saman. Tyson trylltis gjörsamlega og byrjaði að bíta allt og alla sem voru fyrir honum, en greyið Aumingi varð víst alltaf fyrir honum og var þá haldin jarðaför á klósettinu á Klöppinni. Feiti varð þá ekki sáttur við hegðun Tysonar og veitti honum krók á móti bragði. Tyson var algjörlega varnarlaus greyið og hringsnérist, gat ekkert gert og hafði enga stjórn á hegðun sinni, var þá farið með hann inn á klósett og var þá haldin önnur jarðarför á klósettinu á Klöppinni. Á meðan var Lalli Jhons illa haldinn í staupinu. Þannig að nú eru þeir tveir eftir, tveir einfarar sem búa saman sem eitt. Svo kemur það í ljós hver hrekkur uppaf fyrstur og hvort hinn höndli ástarsorgina sem af því hlýst. Hafiði engar áhyggjur ef enhvað gerist þá verðið fyrst að frétta það!

Þetta var litla fiskisagan, í litla fiski húsinu, í litlu fiskieyjunni okkar, á stóra fiskahafinu.

 

 

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 17:29:45 / prydiskonur

Dagur sánkti patriks

jahá í gær var haldið upp á dag st. patricks og eftir hefð var farið í grænann klæðnað og drukkið alveg helling af grænu (já ok mest af því var gullið en í grænum flöskum þó)8|

Við fórum í bæinn um dæinn (haha þetta rýmar) ok keyptum inn og langöðum til að gera eikkvað skemmtilegt, og okkur til mikillar lukku og ánægju já þá var mesti drykkjudagur íra akkurat þann dag jibbí. En það var nú hægara sagt en gert að plana st. Patreks party á tvem tímum og þá sérstaklega á Akureyri. Fórum í allar og þá meinum við allar búðir á staðnum og let me tell you það er ekkert grænt til á þessum blessaða stað en jæja við náðum að redda þessu með gló in ðe dark drasli, grænu glimmeri og pub crawl bolum,takk Búlgaría. Næst var haldið heim með ferju, já ferju, og boðið í partý. Sendum stelpurnar upp og komum okkur í the green madness. Þetta varð svo bara hið huggulegasta teiti og morguninn eftir, já eftir því.8|

Hvernig er svo veðrið? 8|

Jamm jamm kommentiði svo, tell us about your self.8|

ok 8|

já myndir, já þær eru þarna undir myndir og á eftir danmerkurmyndir ok, þið fattið þetta á endanum.8|

luv

snar og snöggur


» 13 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 20:48:50 / prydiskonur

We're going to Live forever, we are going to learn how to fly! FLY

Jæja þá erum við búnar að redda okkur tölvu sem við getum verið með niðri og netið loksins komið til okkar, Takk Kristján 8| Nú verður sko bloggað!!!

Þið eymingjar sem komuð ekki í partýið okkar, vitið sko ekki hverju þið voruð að missa af! 5 Lítra bolla, sem heppnaðist bara mjög vel, húsnæði eins og í MEÐ ALLT Á HREINU með stuðmönnum og eyjaskeggjar til að djamma með, fengum meira að segja yfirmannin til okkar og allt.

Helgina eftir eftirminnilegasta partý sögunar förum við á okkar fyrsta alvöru þorrablót, sem var mjög spes. Hríseyjingar eru sko mjög duglegir í djúsinu þannig að við föllum vel inn í hópinn. Eftir matinn og skemmtiatriðin var svo haldið heim til að skella í sig aðeins meira, skunduðum svo á dansiball með Geirmundi Valtýrs vini okkar8|

Lá svo leið okkar til höfuðborgar Ísland, Reykjavík, þar sem keyptir voru kjólar og skór einnig sást ekkað til okkar með bjór í hendi en tölum ekkert meira um það.

Núna stefnum við á annað partý, hér á okkar fallegu eyju. Grímuball þema óákveðið. Vitum samt ekkert afhverju við erum að segja ykkur það, ekki eins og þið hafið fyrir því að drullast til að mæta...8|8|

Allavegana Þið munið eftir honum Mikael Tamar okkar, litlu elskunni okkar sem lifði hratt en stutt, og Blessuð  sé minning hans en erum við nú loksins búnar að finna tilgang lífsins á ný, fengum við fjóra fallega og yndislega einstaklinga í hendurnar og erum við búnar að skíra einn þeirra, þann minnsta, Lalla Johns vegna búsetu hans í brennivínsstaupi, við erum opnar fyrir hugmyndum að nöfnum fyrir hinar krúsidúllurnar okkar, þannig að endilega setjið hugmyndir ykkar í komment.

                                 

                                                     RIP 

Jæja við erum tómar

 

Bless.8| Kúkalabbar!


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 23:46:39 / prydiskonur

PARTÝ PARTÝ!

Já minn kæri/mín kæra það er rétt sem þú lest, þér og já þeim sem þú vilt taka með er hér með boðið í fyrsta og eina alvöru partý ársins, í perlu eyjafjarðar, í eyjunni sem kennd er við nammi, hinni einu sönnu Hrísey og þetta verður betra því ó já það eru eingar aðrar en gellurnar sem koma með lífið og sálina í öll partý sem þær mæta í, þær sem aldrei segja nei við góðu djammi, hin alræmdu partýljón, Habba og Bylgja.

Jæja og þá er þetta bara undir þér komið lesandi góður, hve svalur, hve töff og hve skemmtilegur þú í rauninni ert. Og ef þú vilt ekki líta til baka eftir 20 ár eða svo með eftirsjá í hjarta og að fólk eigi eftir að minnast þín sem lúðans sem ekki kom, þá mæturu bara með skemmtilegu fólki og hittir annað skemmtilegt fólk. 

FÖSTUDAGINN 2.FEBRÚAR 2007  einhverntímann á milli 7:30 og 23:20 á Árskógssands og takið þaðan til okkar ferju. getur ekki verið auðveldara. Be there or be squere. kv. Habba og Bylgja.  


» 17 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 03:47:21 / prydiskonur

Jæja já!

Þá erum við loksins búnar að láta ekkerjar myndir inn frá DK. Þetta eru bara myndir af okkur en það er bara alltílæí því við erum alveg sjálfum okkur nóg og ekki reynaað segja að það sé ekki gaman að skoða bara myndir af okkur!!!!
Þær eru samt rosalega stórar ogvið kunnum ekki að minnka þær, ef ekker kann að minnka þær endilega látiði okkur vita
Með fyrir fram þökkum !!8|

» 8 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 18:34:34 / prydiskonur

Jólin eru komin

Gleðilega Hátíð allir saman 8|


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 23:44:42 / prydiskonur

titill

Viljum við byrja á því að votta henni Gunnhildi vinkonu okkar alla okkar samúð. biðjum við fyrir Svanndísi Þulu og og Nóna sem berst eins og hetja.

 

 

jæja ekki mikið að frétta héðan aldrei þessu vant. Erum að fara á fínt jólaboð á laugardaginn þar verðum við í okkar fínasta pússi, sem á reyndar ekki eftir að skipta neinu máli vegna skorts á karlpeningnum og eigum við eftir að bæta þann skort með óhóflegri drykkju. Þannig að þegar kvöldið er á enda eigum við eftir að rúlla heim á eyrunum með brunagöt í fínu fötunum og ælu í hárinu. En það er nú bara gaman af því.

Svo er það náttla hittingurinn 21. des bí þer or bí skver, það er sko eins gott að það verði góð mæting, við erum búnar að vera hérna í einangrunarstöðinni í Hrísey og erum að svelta úr slúðurleysi og karlmannsskorti við bara getum ekki sagt þetta nógu oft. En allaveganna hittumst allar þar. 8|

Svo erum við orðnar svo miklar húsmæður að það er bara varla fyndið lengur. Við erum held ég bara Martha Stewart 21. aldarinnar bíðiði bara við eigum eftir að koma með svona litlar svuntur og fá hemma gunn og fleiri svona mega celeb til okkar í föndur og svona skemmtilegt og þið getið fylgst með okkur heima í stofu. Eftir svona ár topps. 8|

Allaveganna erum hættar þessu rugli og vonum að þetta komist inn, annað enn öll löngu fínu og skemmtilegu bloggin sem búið að skrifa hér í kvöld. 8|

Stelpur sjáumstum í hittingnum

Strákar call us :)

og þið hin hugsiði vel um hvort annað , strákar og stelpur líka.


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 19:59:36 / prydiskonur

Lottóbjór allann daginn, alla daga

Hvaða væl er þetta, haldiði að við eigum okkur ekkert líf, eða? 8|

Núna er sko kominn vetur í Hrísey, við getum alveg sagt það með góðri samvisku. Maður þarf nú bara næstum að grafa sig út á morgnanna og svo aftur inn á kvöldinn, helvítis snjór!! Svo er einu sinni ekki hægt að gera snjókall né renna sér á snjóþotu, hann er eikkvað svo hallærislegur og djúpur og við of feitar. 8|

Svo erum við (meira bylgja samt) orðnir sveitalúðar, spilum félagsvist einu sinni í viku, meira vegna bjórsins frekar enn félagsskapsins reyndar, en sveitalúðar samt og stoltar af því.

Svo núna akkúrat þessa stundina er komin kona frá nýja landinu með klæði, skart og eikkvað smarsl í andlitið. Að reyna að selja okkur frumbyggjunum. Veit ekki alveg hvernig það á eftir að ganga hjá henni, því ekki er mikið notað af svona smarsli í sveitinni.

Litla feita tileygða pólska gellan með gleraugun er preggy.

Framhjáhald er svo yfirvofandi í sambandi hennar og kærastans, höldum að hann sé með augastað á vinkonunni sem á kærastann sem er að missa hárið, allavega er ástarloginn ekkert að blinda okkur. Þannig að we will keep you posted. 8|

Heyrst hefur (reyndar á pólsku en heyrst samt) að nýja pólskan sem kemur á hælaskóm með blásið hár og einmitt með þetta smarsl sem konan er að selja í andlitinu í vinnuna, sé að reyna tæla Hermann aðstoðarverkstjóra. En eins og allir vita er hann lofaður Díönnu og eru þau búin að vera gift síðan hún var 19 ára og er hún 22 ára í dag, eiga þau saman tvö ung börn. 8| 8| 8|

Heyriði það, við erum greinilega ekki að standa okkur í stykkinu með þessi sambönd okkar, við eigum að vera löngu búnar að gifta okkur.

Já á meðan við munum, þið svokallaðir VINIR, enginn búinn að koma :frown:

Þið getið bætt ráð ykkar núna og komið í afmælis/innflutningsparty einhverntímann núna í janúar. Og já það er hér á mest úbercool stað á jörðinni, Hrísey. Þannig að það eins gott að þið látið sjá ykkur. Be there or be squere. Það eina sem þið þurfið að koma með er :

1. áfengi

2. tannbursta

3. nærbuxur til skiptanna

4. fullt af slúðri

5. meira áfengi

6. kossa og knús

Það er nú ekki mikið sem þið þurfið til þess að koma til skemmtilegustu og bestu vinkvenna ykkar.

Og svo er það bara eruði GAME úhúhúhúhúhúh..........JÁ

Jæja lottóbjórinn bíður ekki endalaust, erum farnar.

túrelú 


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 23:18:57 / prydiskonur

ekkert

kona í fyrsta flokki styðjum Jóhönnu

» 5 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 22:34:01 / prydiskonur

jólabjórinn kominn

halló halló jólabjórinn kominn og við orðnar fullar. Like it. Erum núna heima hjá Ellu og fríðu og her fireman og erum að sötra. Keane West er ekki cool. núna ætlum við að gera allt vitlaust hérna í köben og erum ekkert vissar um að við komum nokkuð heim aftur. jú ok ekki fara að grenja við komum aftur.

Ása ninna okkur auðvitað máttu koma, hvenær sem er, komdu bara og búðu hjá okkur.

Gerber þú mátt líka alveg koma og búa hjá okkur. María sendu hana bara með póstinum.

Ok

Ella biður að heilsa.

Jaguarinn alveg barinn til að fara á þegar þið komið. Sætir strákar, flottur trúbador, og the works.

Og binni ef þú ert þarna einhversstaðar þá erum við að hugsa til þín, shakira á fóninum og allt bara.

 oh baby when you talk like that , u make a woman go mad.

jæjja er þetta ekki bara komið gott, erum orðnar meira en tipsy núna og þá verður þetta blogg dæmi alltaf erfiðara, þannig að áður en við segjum nú einhverja vitleysu þá erum við bara hættar þessu

kossAR OG KNÚS

SLEIKUR OG BOMBINGUR

HILSEN FRA KÖBEN (Er ekki a með bollu á þessu lyklaborði og þarna hitt öið)

kveðja

2 barnlausar nettar á kantinum

þið þekkjið ykkur eða okkur meina ég, tjá bella


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 22:33:44 / prydiskonur

jólabjórinn kominn

halló halló jólabjórinn kominn og við orðnar fullar. Like it. Erum núna heima hjá Ellu og fríðu og her fireman og erum að sötra. Keane West er ekki cool. núna ætlum við að gera allt vitlaust hérna í köben og erum ekkert vissar um að við komum nokkuð heim aftur. jú ok ekki fara að grenja við komum aftur.

Ása ninna okkur auðvitað máttu koma, hvenær sem er, komdu bara og búðu hjá okkur.

Gerber þú mátt líka alveg koma og búa hjá okkur. María sendu hana bara með póstinum.

Ok

Ella biður að heilsa.

Jaguarinn alveg barinn til að fara á þegar þið komið. Sætir strákar, flottur trúbador, og the works.

Og binni ef þú ert þarna einhversstaðar þá erum við að hugsa til þín, shakira á fóninum og allt bara.

 oh baby when you talk like that , u make a woman go mad.

jæjja er þetta ekki bara komið gott, erum orðnar meira en tipsy núna og þá verður þetta blogg dæmi alltaf erfiðara, þannig að áður en við segjum nú einhverja vitleysu þá erum við bara hættar þessu

kossAR OG KNÚS

SLEIKUR OG BOMBINGUR

HILSEN FRA KÖBEN (Er ekki a með bollu á þessu lyklaborði og þarna hitt öið)

kveðja

2 barnlausar nettar á kantinum

þið þekkjið ykkur eða okkur meina ég, tjá bella


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 22:52:42 / prydiskonur

Hónkídónkí!!

WHY ARE YOU SLEEPING!!!

Sko í hvert skipti sem þið farið á síðuna þá á sko að skrifa í komment eða jafnvel gestabókina, ALLTAF AÐ SKRIFA 8|

En já annars, það er svo gaman að vera pólverji í alvöru talað, alltaf ekkað hlæja af bullinu í sjálfum sér og vera halló!!!!! 8|  .....We dont like póló...verjó...pípóló

Nýja gellan (pólsk, auðvitað!!) mætti í 15 cm háum hælaskóm í vinnuna, við vinnum í fiski skiluru dreptu mig ekki!!! í djúpum snjó sem breytist í klaka um leið og maður leggur fæti í hann. alveg með ólíkindum alltaf stífmáluð í vinnunni eins og það séu ekkerjir gæjar hérna!! og þá kom bossinn til okkar og sagði að við værum nú ekkert að standa okkur í þessu, aldrei málaðar í vinnunni, og ekki vildum við vera sakaðar um ljótleika í vinnunni sem er að skera FISK, þannig við komum ógó málaðar og sætar eins og hálvitar og vitið menn það tók bara enginn eftir því, sem segir okkur bara eitt við erum bara alltaf jafn..... já tölum ekkert meira um það!!! 8|

En hvað segiði annars gott, við vorum að spá í að halda afmælis/innflutningspartý helgina 24-26 Nóv. og eins gott að þið mætið og ekkert rugl um hvað við eigum heima langt í burtu taliði bara við Ragnheiði hún á stóran van. Þessi rauði sem er alltaf á Bubbu, komast nú þó nokkuð margir í hann, ehaggi Ragga!!! Verið þar eða verið ferköntuð! við erum meira að segja að pæla í að leigja Sæborg!!!seme r sko aðal pleisið í Hrísey!!!8|

Við erum að fara skella okkur í kongsins köben þó ykkur gæti ekki verið meira sama þá fannst okkur rétt að segja það svo þið fáið ekki flog þegar við erum ekki heima þegar þið komið í heimsókn!!! Fáum nú nóg af þeim, ekki satt Bóla!!!

Ég fer í fríið!

Ljósin á ströndu skína skær

skipið það færist óðium nær

og þessi sjóferð endi fær.

Ég búinn er að puða og púla

pokann að hífa og dekkin spúla.

Reifur ég stend í stafni hér

strax og að landi komið er

Bý é mig upp og burtu fer.

(viðlag)

Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið.

Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég fer í fríið.

8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|


» 12 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 16:39:11 / prydiskonur

Helló hómís!

Við erum búnar að reyna blogga hvern einasta dag og það bara kemur aldrei inn og eyðist bara, helvíti!!! en ef þið eruð að leda þetta núna, þá komst það inn 8|

Það kom snjór og svo fór snjór kom aftur og fór svo enn einu sinni, fréttir verða sagðar síðar. 8|

Habba :  Usss heyriru eitthvað???

Bylgja : Ha? nei!!!!

Habba og Bylgja!!! ohhhh we are home alone 8|

Sem er bara mjög gott og rúmlega það ef ekki þá veit ég ekki hvað. 8|

Og svona smá hint hérna, ALDREI ALDREI kaupa ykkur fisk, þeir eru hallærislegir og gera ekki neitt nema vera halló og svo deyja þeir bara úr hallæri. Þannig var mál með vexti að við hérna dýravinirnir keyptum okkur eitt fiskfífl og hugsuðum ótrúlega vel um hann, allt of vel meira að segja. Tókum af honum myndir, gáfum honum dót og gerðum búrið hans ótrúlega flott. Og hvað fáum við að launum, ekki neitt nema þá hundblauta gólftusku beint í fésið.

Já og Ella gella : Anytime, nefndu bara stað og stund og þar verðum við með bjór í annari og fallegan eyjastrák í hinni.

                                                    ATH 8|

leikþáttur mun vera á þessari bloggsíðu í hverri viku.

Sannar sögur um alvöru pólverja sem nýkomnir eru til perlu eyjafjarðar.

p.s. are everybody flýjing you??? 

Ert þú orðinn leiður á lífinu??

Langar þig að sjaá skemmtilegustu myndir veraldar???

Óheppinn Bóbó. Við kunnum ekki að setja neitt inná nema blogg sem við kunnum varla á heldur. Hekla við kunnum heldur ekki að láta inn tengla, en um leið og þið þarna úti segjið okkur hvernig á að gera þetta þá skulum við með mikilli ánægju drulla inn myndum og öðru drasli eins og við eigum lífið að leysa.

Valur við elskum þig, druslastu í heimsókn. 8|

Og Rambó við erum skotnar í þér. 8|

Ragnheiður hættu að þykjast eiga svona mikið líf að þú þurfir að finna helgi, komdu bara. 8|

over and out.


» 12 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 23:52:20 / prydiskonur

SHIT MAR!!!

Over and out!8|

you will get whats coming to ya! 8|

við vorum búnar að reita af okkur slúður og meira skemmtilegt en svo vildi það ekki koma inn og allt týndist! GET OVER IT 8|


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 22:44:49 / prydiskonur

Snæfinnur Snjókall!!

JESUS JONES AND BOBBY

Þið eigið aldrei eftir að trúa þessu!!! Það er byrjað að snjóa í Hrísey. Jæja það hlaut að koma að þessu enda komin október!! Hvað er að ykkur trúiði þessu ekki trúiði þessu ekki? við erum að segja satt, Hekla mín þú mátt sko stinga þínum 30 + stigum þar sem sólin ekki skín!!!

Eins gott að það snjói ekki á föstudaginn, við ekki með vetrardekk og kagginn ekki alveg í besta standi til að riðja skafla! Því við erum að fara suður í höfuðborgina... kikja á siðmenninguna og go loco 8|

Habba! Djöfull hlakkar mig ekki til að vakna kl 04:30 og vaða snjóskaflana til að drullast niður í vinnu¨!!!

Bylgja! Vorkenni þér ekki skít, þarf að druslast með skrímslin í leikskólan sem er mun lengra en vinnan og ekki með neina helvítis snjóþotu!!!

BYE BYE MY BABIES 8|


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti
Dagsetning
9. febrúar 2010